Stafræn
vinnustaðaskírteini

Í fyrsta sinn býðst nú fyrirtækjum að gefa út stafræn vinnustaðaskírteini.
Nákvæm yfirsýn, einfalt og notendavænt kerfi þar sem þú getur uppfært gildistíma og ógilt skírteini í rauntíma.

Vinnustaðaskírteini beint í símann
Hver ertu býður fyrirtækjum að gefa út stafræn vinnustaðaskírteini sem geta leyst af hólmi hefðbundin plast- og pappírsskírteini.
Týnd skírteini heyra sögunni til og stjórnendur geta uppfært gildistíma og ógilt skírteini í rauntíma.
Umhverfisvæn lausn og ótakmarkað magn skírteina. Hver ertu var þróað að frumkvæði Meistaradeild SI í nánu samstarfi við Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök atvinnulífsins. Aðildarfyrirtækjum þessara samtaka býðst kerfið á sérstökum kjörum.
Filmís vef- og hugbúnaðarstofa rekur Hver ertu og býr starfsfólk okkar yfir meira en 10 ára reynslu í vef- og hugbúnaðargerð.

Dæmi um viðskiptavini:















Helstu eiginleikar og verð:
- Ótakmarkaður fjöldi vinnustaðaskírteina
- Stafræn vinnustaðaskírteini uppfylla sömu kröfur og hefðbundin plast- og pappírsskírteini
- Búðu til skírteini fyrir alla starfsmenn með örfáum og einföldum skrefum
- Kerfið sér um að senda vinnustaðaskírteinin með tölvupósti beint á starfsmenn sem geta svo í kjölfarið sett skírteinin í símaveskin sín
- Týnd vinnustaðaskírteini eru ekki lengur vandamál
- Þegar starfsmaður hættir er strax hægt að ógilda vinnustaðaskírteinið svo viðkomandi geti ekki notað það áfram
- Stafrænu vinnustaðaskírteinin virka fyrir bæði Apple & Android síma
- Kerfið veitir fyrirtækjum nákvæmt yfirlit yfir útgefin vinnustaðaskírteini, stöðu þeirra og gildistíma
- Auðvelt að uppfæra gögn, stöðu eða eyða skírteinum eftir þörfum
- Tímasparnaður: Öll vinnustaðaskírteini á einum stað og ekki þarf lengur að bíða eftir vinnslu og prentun þriðja aðila heldur er allt stafrænt
- Sendu lista af vinnustaðaskírteinum á samstarfsaðila - Veldu nokkra starfsmenn og sendu skírteinalista til samstarfsaðila í gegnum innbyggða tölvupóstkerfið í Hver ertu
- Stafrænu vinnustaðaskírteinin frá Hver ertu eru umhverfisvænn kostur á sanngjörnu verði
Verð: kr 3.990 án vsk á mánuði*
*Félagsmenn SI, SA, SAF og SVÞ fá 50% afslátt af mánaðarverði.
Svona er ferlið
Stofna aðgang
Auðvelt og fljótlegt er að stofna aðgang fyrir fyrirtækið og getur þú strax byrjað að nota kerfið.
Búa til vinnustaðaskírteini
Næsta á dagskrá er að stofna vinnustaðaskírteini fyrir alla þína starfsmenn.
Skírteinið í símaveskið
Starfsmenn fá vinnustaðaskírteinin send í tölvupósti og geta nú bætt þeim í símaveskið.
Auðveld umsýsla
Nú hefur þú góða yfirsýn yfir öll vinnustaðaskírteinin og getur breytt gildistíma, gert þau ógild og bætt við nýjum.
Rafrænar heilsufarsyfirlýsingar starfsfólks
Með Hver ertu geta fyrirtæki nú haldið utan um heilsufarsyfirlýsingar starfsfólks með rafrænum hætti, án pappírs og handvirkrar umsýslu. Starfsmenn fá yfirlýsinguna senda rafrænt, skrifa undir með öruggri rafrænni undirritun og er hún síðan vistuð og aðgengileg beint í kerfinu — tengd við vinnustaðaskírteini viðkomandi starfsmanns.
Af hverju að nota rafrænar heilsufarsyfirlýsingar?
- Engin pappírsvinna eða handvirk skráning
- Allar yfirlýsingar geymdar á einum stað
- Sýnilegt hver hefur undirritað og hvenær
- Auðvelt að nálgast yfirlýsingar við eftirlit
- Minnkar hættu á að gögn týnist eða séu óaðgengileg
- Tengist beint við vinnustaðaskírteini starfsmanns
Hvernig virkar þetta?
- Fyrirtæki stofnar heilsufarsyfirlýsingu í kerfinu
- Starfsmaður fær hana senda rafrænt
- Hann skrifar undir með rafrænni undirskrift
- Undirrituð yfirlýsing vistast sjálfkrafa í kerfinu
- Yfirlýsingin er aðgengileg undir vinnustaðaskírteini starfsmanns
- Stjórnendur hafa aðgang að öllum heilsufarsyfirlýsingum starfsfólks
Fyrir hverja er lausnin?
Lausnin hentar sérstaklega fyrirtækjum sem þurfa að halda utan um heilsufarsyfirlýsingar starfsfólks, til dæmis í:
- Veitingageira
- Matvælaiðnaði
- Framleiðslu og vinnslu matvæla
Verð: kr 2.990 án vsk á mánuði* (viðbót við gjald fyrir vinnustaðaskírteini)
*Félagsmenn SI, SA, SAF og SVÞ fá 50% afslátt af mánaðarverði.
Rafræn undirskrift: 200 kr. + vsk fyrir hverja undirritun



